Mist & Co. Travel Size Brush Cleaner – 50ml
Fullkominn stærð fyrir ferðalög, förðunarboxið eða veskið ✨ Nú geturðu tekið uppáhalds burstahreinsinn þinn með þér hvert sem er.
Veldu á milli tveggja formúla:
-
Daily – Hentar til að þrífa bursta eftir daglega notkun. Skilur burstana eftir ferska, hreina og ilmandi af grænu tei & límónu 🌿🍋
-
Deep Clean (Rosé) – Sérstaklega áhrifaríkur á mjög óhreina bursta og vatnsheldan farða. Skilur burstana eftir hreina og ilmandi af mildum rósablöðum 🌹
Notkun
Spreyjaðu 2–4 sinnum á bursta með Removing Towel undir. Nuddaðu burstanum við klútinn þar til hann verður hreinn – endurtaktu ef þörf er á. Burstar þorna á einni mínútu og verða eins og nýir.